|
Details
Vistkerfið á Íslandi.
Hvað einkennir lífríkið í Íslandi? Lífríkið á Íslandi er svolítið frábrugðið lífríkinu í öðrum löndum. Við erum með mjög ófjölbreytt dýralif og það eru ekki lífshættuleg dýr hérna s.s. ljón, birnir, snákar o.fl. Dýrin sem eru á Íslandi geta verið mjög frábrugðin dýrum úr öðrum löndum. Eins og köngulær eru minni og ekki eitraðar hér á landi miðað við eins og Ástralíu. Það eru mikið af farfuglum á landinu og bara mikið af fuglum almennt. Ísland er svo líka mjög eldvirkt land, við erum á heitum reit, mörg eldgos og eldvirkni. Það er mikill jarðhiti er á Íslandi en líka mikið af jöklum. Ísland er líka mjög þekkt fyrir hreina vatnið. Vatnið er líka mjög heitt en getur líka verið mjög kalt eins og í sjónum um veturnar sérstaklega. Hvað hef ég lært seinustu 4 vikurnar?
Seinustu 4 vikurnar í náttúrufræði höfum við lært margt og mikið. Við lærðum t.d mjög mikið um vistkerfið, fæðukeðjur og fæðuvefi, við erum líka búin að læra um mismunandi tegundir af trjám. Við höfum verið að gera allskonar mismunandi verkefni til þess að læra. Við fórum einn tímann út og skoðuðum tré og fundum út hvaða tegundir af trjám við getum séð fyrir utan. Við spiluðum Alías út frá hugtökum tengt vistfræði, Fórum í Kahoot. Við bjuggum til hugtök úr pörtum af orðum og höfum líka bara verið að tala saman um hugtök, vistfæði, fæðuvefi og o.fl. Nokkur af hugtökunum sem við lærðum: Lærði aðeins um eftirfarandi tré Frumbjarga Ösp Ljóstillifun Greni Vistkerfi Birki Glúkósi Blæösp Ófrumbjarga Barrtré Súrefni Lauftré 3.10 2018
Í tímanum í dag vorum við í stöðvavinnu. nokkrar stöðvar voru í boði t.d. að skoða nauta sæði í smásjá og líka skoða fleiri hluti i smásjám. Einnig var í boði að skoða efni í fræðandi bókum og svo líka að fá sér blað og lita ákveðnar frumur í ákveðnum litum. Stöðin sem ég var á nánast allan tímann var að skoða hluti í smásjám. Sæðissýnið sem við sáum var búið að vera djúpfyrst síðan í maí einning skoðuðum við litla parta af gúrku, laufblaði og vatnsdropa. 22.10 2018
Síðustu vikur höfum við verið að læra margt og mikið um frumur og hugtök tengt frumum, við höfum notað mismunandi aðferðir til að læra eins og t.d. Kahoot, stöðvavinnu, mismunandi hópverkefni og farið í gegnum Nearpod kynningar. Eftir þessa tíma erum við búin að læra mikið og núna vitum við t.d. muninn á plöntufrumu og dýrafrumu. Munurinn á þeim er að plöntufrumur hafa grænukorn, frumuvegg og stórar safabólur en dýrafrumur hafa deilikorn annað en plöntufrumur. Einnig lærðum við um stofnfrumur. Allar frumur í líkamanum okkar urðu til frá einni frjóvgaðri eggfrumu. Þegar þessi fruma fjölgaði sér þá á tímapunkti voru allar frumur í líkamanum okkar eins en núna höfum við frumur eins og vöðvafrumur, húðfrumur, blóðfrumur og taugafrumur. Hvatberi er hugtak sem við lærðum um. Hvatberi er orkuver frumna því frumur þurfa orku til að lifa. Sæðisfruman er fruman sem inniheldur flestu hvatberana. Nokkur af hugtökunum sem við lærðum og hvað þau þýða. DNA/Erfðarefni = Kjarnsýrur sem geyma erfðafræðilegar upplýsingar eða uppskrift fyrir byggingu frumna. Frymi = Efni sem myndar uppistöðuna í líkömum alla lifandi vera. Hvatberi = Orkuver frumna. Safabóla = Bóla í umfrymi frumna sem t.d. flytja hráefni á yfirborð frumna í meiri vinnslu. Umfrymi = Vökvi sem þekur rýmið milli frumulíffæra. Leysikorn = Frumulaga líffæri sem eru mynduð í golgíkerfinu. Frumukjarni = Líffæri sem geymir erfðarefnið. Frumuveggur = Verndar eða styrktarhjúpur utan um frumuhimnuna. Stofnfrumur = Ósérhæfar frumur sem geta þroskast yfir í sérhæfðari frumur. 24.10 2018
Hugtaka kort um frumur sem ég gerði |